Erlent

Á bátum í skólann

Miklar rigningar sem fylgt hafa í kjölfar fellibylsins Dennis á karabíska hafinu hafa orðið til þess að grunnskólabörn í Seaview skólanum á Jamaika hafa þurft að fara á bátum í skólann síðustu daga. Hjálpar það reyndar ekki til að flest afföll við skólahúsið hafa lengi verið stífluð og taka því ekki við miklu vatnsmagni en ein alvarlegasta hættan í kjölfar fellibylja eru miklar rigningar sem oft leiða til mikill vatnavaxta og jafnvel flóða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×