Erlent

50 ára trúarstríð framundan

Hryðjuverk um alla veröld er eins og kjarnorkusprengja sem hrint hefur verið af stað, segir faðir eins þeirra sem frömdu hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Um leið fullyrti hann að frekari árásir myndu fylgja í kjölfarið og sagði árásirnar á Lundúnir, New York og Madrid aðeins vera upphafið að hálfrar aldar löngu trúarstríði. Hann segist enga samúð hafa með fórnarlömunum í Lundúnum og sagði tvöfalt siðgæði ríkja varðandi þau fórnarlömb og þeirra sem hafa látið lífið í íslömskum löndum. Hann hét að gera allt sem í sínu valdi stæði til að hvetja til frekari hryðjuverkaárása.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×