Erlent

Sprengja í Kasmír

Að minnsta kosti sex fórust í sprengjutilræði í Srinagar, sumarhöfuðborg Jammu-Kasmír héraðs, og 20 meiddust. Tilræðið var framið í hverfi embættismanna en ekki er vitað hvernig staðið var að því. Yfirvöld segja að sjálfsmorðsprengjumaður hafi ekið bíl sínum á herjeppa. Talsmaður Hezb-ul Mjuahedeen, íslamskra öfgasamtaka frá Pakistan sem lýst hafa yfir ábyrgð á tilræðinu, segir hins vegar að sprengjan hafi verið fjarstýrð. Indverjar og Pakistanar hafa lengi deilt um Kasmír en á síðustu misserum hafa friðarhorfurnar aukist verulega. Tilræðinu virðist ætla að spilla þeim frið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×