Vill Bandaríkjaher burt hið fyrsta 24. júní 2005 00:01
Bandaríkin ættu ekki einu sinni að íhuga að fækka hermönnum í Írak næstu árin, að mati bandarískra hershöfðingja. Forsætisráðherra Íraks vill hins vegar að þeir fari við fyrsta mögulega tækifæri. Bandarískir ráðamenn voru á því lengi vel að brottflutningur hersveita frá Írak hefðist á næsta ári. Nú telur Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að rangt sé að setja sér einhvers konar tímamörk. Eina afleiðing þess sé að uppreisnar- og hryðjuverkamenn sjái sér hag í að þrauka þangað til þess kemur. Rumsfeld lýsti þessari skoðun sinni við yfirheyrslu hjá þingnefnd í gærdag. John Abizaid, yfirmaður hersveita í Persaflóa, sagði við sama tækifæri að erlendum bardagamönnum, sem streyma inn í Írak, hefði fjölgar undanfarið hálft ár og að andspyrnan hefði síst minnkað. Fréttatímaritið Economist hefur eftir bandarískum hershöfðingjum að í raun væri nær lagi að fjölga bandarískum hermönnum í Írak fremur en að fækka þeim. Þeir segja að það muni taka mörg ár að byggja upp heildstæðan írakskan her með góðum stjórnendum. Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, vill að bandaríski herinn fari eins fljótt og auðið er en segir jafnframt að í ljósi uppreisnarinnar og fjölda erlendra bardagamanna í Írak sé nokkuð í að hersveitirnar fari. Írakar geti enn sem komið er ekki séð um öryggismál sjálfir.
Erlent Fréttir Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira