Erlent

Bylgjur hröktu höfrunga á land

Leynileg kafbátaæfing bandaríska flotans er talin hafa orðið til þess að 60 höfrungar syntu upp í fjöru í Flórída í síðustu viku. Þriðjungur þeirra drapst eða var lógað en björgunarsveitir og sjálfboðaliðar björguðu hinum. Hugsanlegt er að öflugar hljóðbylgjur í mælitækjum sem eru notuð í kafbátum til að stjórna þeim og miða út skotmörk geti skaðað heila og heyrn sjávarspendýra, til dæmis hvala og höfrunga; þau verði svo rugluð í ríminu að þau syndi á land. Evrópusambandið hefur bannað aðildarlöndum sínum að nota þess háttar mælitæki í hafinu þar til áhrif þeirra eru betur þekkt. Viðlíka bann gildir ekki um bandaríska flotann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×