Erlent

Á leið að hnattflugsmeti

Auðkýfingurinn Steve Fossett var í gær meira en hálfnaður á leið sinni umhverfis jörðina, í tilraun sinni til að verða fyrsti maðurinn sem flýgur hnattflug einsamall, viðstöðulaust og án millilendingar eða eldsneytisáfyllingar. Síðdegis í gær var hann staddur yfir Asíu á hraðri austurleið, í um 13,5 kílómetra hæð. Tilraunaflugvél hans, GlobalFlyer, nær allt að 650 km hraða, en hún sveif í gær yfir Norður-Afríku og Mið-Asíu og austur yfir Austur-Asíu. Flugferð Fossetts hófst í Salina í Kansas á mánudagskvöld. Fossett ætlar sér að ljúka hinu 37.000 km langa flugferðalagi um miðjan dag í dag. Í kvöld lenti Fossett hins vegar í miklum vandræðum þar sem eldsneytisbirgðir vélarinnar virtust mun minni en hann hélt. Engu að síður ákvað hann að halda ótrauður áfram. Fossett er að reyna að slá mörg met í einu, þar á meðal lengsta viðstöðulausa flugi þotu. Gildandi met er 19.308 km en það var sett á B-52-sprengjuþotu árið 1962. Richard Branson, stofnandi Virgin-samsteypunnar og félagi Fossetts í ævintýramennskunni, fjármagnar mettilraunina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×