Erlent

Kobe samdi við stúlkuna

Körfuknattleiksmaðurinn Kobe Bryant, sem fyrir rúmu ári var ákærður fyrir nauðgun, hefur náð samkomulagi við stúlkuna sem ákærði hann. Horfið var frá sakamáli á hendur Bryant í september síðastliðnum og fór stúlkan þess í stað með málið fyrir borgaralegan dómstól í þeirri von að fá skaðabætur. Samkvæmt heimildum ABC-fréttastofunnar fer málið hins vegar ekki lengra því að Bryant hefur náð samkomulagi um greiðslu til stúlkunnar vegna þess skaða sem hún varð fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×