Enn er mótmælt í Beirút 1. mars 2005 00:01
Hundruð manna héldu áfram mótmælum í Beirút í gær, degi eftir að Omar Karami forsætisráðherra baðst lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Mannfjöldinn krafðist þess að þeir 15.000 sýrlensku hermenn sem enn eru í landinu hefðu sig þaðan á brott og að Sýrlendingar hættu afskiptum af innanríkismálum Líbanons. Á meðan situr stjórnarandstaðan á rökstólum og ræðir stöðuna. Leiðtogar hennar hafa krafist þess að hlutlaus bráðabirgðastjórn verði mynduð sem skipuleggja eigi þingkosningar í vor og rannsaka morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra. Sýrlendingar eru undir auknum alþjóðlegum þrýstingi um að draga herlið sitt í Líbanon til baka. Condoleezza Rice og Michel Barnier, utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Frakklands, hvöttu þá til þess arna á blaðamannafundi í Lundúnum í gær. Forseti landsins, Emile Lahoud, hefur fengið sinn skerf af gagnrýninni en hann mun á næstu dögum ráðfæra sig við leiðtoga þjóðarbrotanna í landinu og skipa í framhaldi af því nýjan forsætisráðherra.
Erlent Fréttir Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Sjá meira