Áframhald á óeirðum 5. nóvember 2005 20:58
Úthverfi Parísar standa í ljósum logum kvöld eftir kvöld. Bara í gærkvöldi brunnu níu hundruð bílar, auk þess sem kveikt var í verslunum, skólum, barnaheimilum og eiginlega hverju því sem á vegi reiðra mótmælenda varð. Óeirðirnar hófust í Clichy-sous-Bois fyrir níu dögum og svo borgir eða úthverfi hringinn í kringum miðborg Parísar, þangað sem ólætin hafa breiðst út undanfarna daga. Í gærkvöldi bárust svo fregnir af óeirðum í nokkrum öðrum borgum Frakklands. Frönsk stjórnvöld standa agndofa hjá og gengur ekkert að ná tökum á ástandinu. Þrátt fyrir að á annað þúsund lögreglumenn hafi verið sendir á vettvang gengur ekkert að stöðva óeirðirnar sem hafa brotist út á hverju kvöldi síðan 27. október. Þá bárust fregnir af því að tveir drengir af afrískum uppruna, fimmtán og sautján ára, hefðu látist þegar þeir fengu raflost þar sem þeir földu sig í lítilli rafstöð á flótta undan lögreglunni. Um eitt þúsund manns tóku svo í dag þátt í þögulli mótmælagöngu gegn óeirðunum í Aulnay-sous-Bois, einu þeirra hverfa sem hvað verst hafa orðið úti. Brunnir bílar og byggingar um allt bera þess glöggt vitni. Óeirðirnar hafa stigmagnast með hverjum deginum sem líður og fátt sem bendir til þess að þeim linni í bráð. Ríkisstjórn Frakklands hefur þungar áhyggjur af ástandinu en boðar áframhaldandi hörku í samskiptum við þá sem standa fyrir ólátunum. Jóhann M. Hauksson bjó árum saman í Frakklandi og hefur meðal annars kennt námskeið um rasisma við Háskóla Íslands. Hann segir ástæðu óeirðanna meðal annars vera þá að óeirðirnar eigi sér stað í úthverfi Frakklands þar sem safnast hefur upp eymd og volæði síðustu áratugi meðal innflytjenda. Börn innflytjenda búa við mikið vonleysi. Í Clichy-sous Bois er 25% atvinnuleysi meðal ungs fólks. Jóhann segir ástæðu þess að upp úr sjóði núna einkum vera stjórnmálalegs eðlis og beinist þar spjótin að Nicolas Zarkosy innanríkisráðherra en hann tók upp svokallaða "zero tolerance" stefnu, líkt og Bandaríkjamenn tóku upp hjá sér. Stefna þessi felst í því að lögregla hefur gerst æ ákveðnari í samskiptum sínum við innflytjendur og vandamálum þeim tengt. Jóhann segir ástandið óþolandi fyrir fólkið en lögregla leiti gjarnan á fólki út á götu og biðji um vegabréf. Einnig virðist skipta máli hver uppruni fólks sé, en hann hafi til að mynda aldrei verið stoppaður út á götu af lögreglunni vegna þess að hann var hvítur. Arabískir kunningjar hans hafi þó ekki sömu sögu að segja. Þetta vekur óænagju meðal fólksins sem sé ein helsta ástæða óeirðanna. Jóhann segir að verulega hafa verið dregið úr félagslegri aðstoð og verkefni fyrir ungt fólk hafi verið aflögð. Hann gerir þó ráð fyrir að óeirðirnar muni ljúka að lokum líkt og annars staðar en mikilvægt sé að grípa til aðgerða svo sagan endurtaki sig ekki. Fréttina má sjá í heild sinni á VefTV Vísir.
Mest lesið Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Fleiri fréttir Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Sjá meira