Óeirðirnar breiðast út 5. nóvember 2005 13:15
Franska lögreglan handtók tvö hundruð og fimmtíu manns í gærkvöldi, í miklum óeirðum í úthverfum Parísar, níunda kvöldið í röð. Kveikt var í að minnsta kosti sjö hundruð og fimmtíu bílum. Óeirðirnar hófust fyrir níu dögum þegar tveir drengir af afrískum uppruna, fimmtán og sautján ára, fengu raflost þar sem þeir földu sig í rafstöð, að sögn fyrir lögreglunni. Þeir létust báðir. Þá var eins og púðurtunna springi og ungir, fátækir innflytjendur þyrptust út á götur um kvöldið með látum, kveiktu í bílum og létu ófriðlega. Lögregla var kölluð til og að morgni virtist allt orðið rólegt. En kvöldið eftir urðu enn meiri átök og skemmdarverk og síðan hefur ástandið versnað dag frá degi. Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Zarkosy, sagði í fyrstu að það þyrfti bara að taka hart á þessum óeirðaseggjum og hreins út úr þessum subbuhverfum. Þau ummæli féllu í grýttan jarðveg og ýttu undir frekari ólæti. Í gærkvöldi var kveikt í hundruðum bíla og lögregla handtók vel á þriðja hundrað manns. Brennuvargarnir kveiktu einnig í tveimur barnaheimilum og einum skóla. Óeirðirnar hafa nú breiðst út til fleiri borga og var tilkynnt um ólæti í Nice, Marseille, Dijon, Rennes og Toulouse. Frönsk stjórnvöld keppast nú við að koma böndum á ástandið, en Zarkosy hefur viðurkennt að málið sé mun stærra og erfiðara en hann hélt og það eigi sjálfsagt eftir að taka nokkurn tíma bæði að kveða niður ólætin og síðan að ná sáttum við þennan þjóðfélagshóp sem auðsjáanlega hefur bælt niðri mikla gremju með stöðu sína lengi, sem hefur nú komið upp á yfirborðið eins og sprenging. Nánar verður fjallað um þetta mál í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálfsjö í kvöld.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira