Erlent

Óeirðirnar breiðast út

Franska lögreglan handtók tvö hundruð og fimmtíu manns í gærkvöldi, í miklum óeirðum í úthverfum Parísar, níunda kvöldið í röð. Kveikt var í að minnsta kosti sjö hundruð og fimmtíu bílum.

Óeirðirnar hófust fyrir níu dögum þegar tveir drengir af afrískum uppruna, fimmtán og sautján ára, fengu raflost þar sem þeir földu sig í rafstöð, að sögn fyrir lögreglunni. Þeir létust báðir. Þá var eins og púðurtunna springi og ungir, fátækir innflytjendur þyrptust út á götur um kvöldið með látum, kveiktu í bílum og létu ófriðlega. Lögregla var kölluð til og að morgni virtist allt orðið rólegt. En kvöldið eftir urðu enn meiri átök og skemmdarverk og síðan hefur ástandið versnað dag frá degi.

Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Zarkosy, sagði í fyrstu að það þyrfti bara að taka hart á þessum óeirðaseggjum og hreins út úr þessum subbuhverfum. Þau ummæli féllu í grýttan jarðveg og ýttu undir frekari ólæti. Í gærkvöldi var kveikt í hundruðum bíla og lögregla handtók vel á þriðja hundrað manns. Brennuvargarnir kveiktu einnig í tveimur barnaheimilum og einum skóla.

Óeirðirnar hafa nú breiðst út til fleiri borga og var tilkynnt um ólæti í Nice, Marseille, Dijon, Rennes og Toulouse. Frönsk stjórnvöld keppast nú við að koma böndum á ástandið, en Zarkosy hefur viðurkennt að málið sé mun stærra og erfiðara en hann hélt og það eigi sjálfsagt eftir að taka nokkurn tíma bæði að kveða niður ólætin og síðan að ná sáttum við þennan þjóðfélagshóp sem auðsjáanlega hefur bælt niðri mikla gremju með stöðu sína lengi, sem hefur nú komið upp á yfirborðið eins og sprenging. Nánar verður fjallað um þetta mál í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálfsjö í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×