Dýrt spaug ef flug tefst 17. febrúar 2005 00:01
Það getur verið þreytandi að bíða tímunum saman á flugvöllum eða jafnvel í flugvélum vegna tafa, en framvegis verður það líka dýrt spaug - fyrir flugfélögin. Nýjar Evrópureglur tóku í dag gildi sem gera ráð fyrir mun hærri greiðslum til farþega sem verða fyrir töfum. Þeir eru sjálfsagt fáir flugfarþegarnir sem aldrei hafa lent í því að bíða eftir flugi sem tafist hefur af einhverjum sökum. Víða á meginlandi Evrópu er það nánast reglan fremur en undantekningin þar sem flugumferð er svo mikil að hvorki flugvellir né flugumsjónarkerfi anna henni almennilega. Fram til þessa hafa bætur vegna tafa verið fremur rýrar, en ekki lengur. Nýjar reglur tóku í dag gildi innan Evrópusambandsins sem hækka bótagreiðslur til farþega vegna tafa til muna. Farþegar sem komast ekki í flug vegna þess að flugvél hefur verið yfirbókuð, eða ef mikil seinkum kemur til af völdum flugfélagsins, fá á milli tuttugu og fimmtíu þúsund krónur, eftir því hversu flugferðin er löng. Tafir vegna veðurs eða verkfalla, til að mynda, eru hins vegar ekki á ábyrgð flugfélaganna. Jacques Barrot, samgöngumálastjóri ESB, segir sambandið fara fram á þetta við öll flugfélög auk þess sem þau hleypi öllum um borð, án mismunar. Ekki eru þó allir ánægðir með þetta. IATA, Alþjóðasamtök flugfélaga, sem og samtök lággjaldaflugfélaga, hafa mótmælt reglugerðinni og segja ljóst að kostnaðinum verði velt yfir á farþegana sem borga þá meira fyrir miðann.
Erlent Fréttir Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Sjá meira