Erlent

Sjö Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraela

MYND/AP

Sjö Palestínumenn létust og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. Í gær gaf Ariel Sharon ísraelska hernum opið skotleyfi á uppreisnarmenn á Gaza og átta mánaða vopnahlé virðist endanlega úr sögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×