Erlent

Gert ráð fyrir samþykki

Þrátt fyrir mikla þátttöku súnnía í þjóðarkosningum Íraka um stjórnarskrá á laugardag er talið líklegt að niðurstaðan verði sú að þjóðin samþykki nýju stjórnarskrána. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni svo hún verði felld. Gríðarleg öryggisgæsla var um allt landið í gær. Þrátt fyrir þessar hótanir fóru kosningarnar nokkuð friðsamlega fram og var dagurinn einn sá friðsælasti í margar vikur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×