Erlent

Ráðherralisti tilbúinn í Noregi

Jens Stoltenberg, tilvonandi forsætisráðherra Noregs, segist hafa komist að samkomulagi um hvert ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn en hann hyggst ekki greina frá því hverjir sitja í henni fyrr en hann hefur látið Harald konung fá lista yfir ráðherrana í fyrramálið. Gengið hefur verið frá því að Verkamannaflokkur Stoltenbergs, sem sigraði í þingkosningunum í síðasta mánuði, fái tíu ráðuneyti, Sósíalíski vinstriflokkurin fær fimm ráðuneyti og Miðflokkurinn fjögur. Aftenposten greinir frá því að yfirmaður Rauða krossins í Noregi, Jonas Gahr Stöhre, verði líklega næsti utanríkisráðherra landsins og þá verður Kristin Halvorsen, formaður Sósíalíska vinstriflokksins, fjármálaráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×