Gripið til aðgerða innan 3 vikna 15. október 2005 00:01
Mannskæði stofn fuglaflensunnar hefur nú fundist í Rúmeníu. Sérfræðingar Evrópusambandsins vilja grípa til aðgerða innan þriggja vikna. Á sama tíma berast af því fregnir að helsta vörnin gegn flensunni, flensulyfið Tamiflu, dugi ekki til. Rannsóknir hafa staðfest að mannskæði stofninn hefur borist til Rúmeníu og var greint frá tíðindunum í morgun. Vísindamenn á breskri rannsóknarstofu höfðu tilfelli sem fundust í Rúmaníu í vikunni til skoðunar og komust að þessari niðurstöðu. Þetta staðfestir enn frekar að banvæni stofninn hefur borist til Evrópu. Sextíu hafa týnt lífi í Asíu af völdum fuglaflensunnar þó að hún berist sjaldan frá dýrum í menn. Það voru þrjár endur sem fundust dauðar í Dónár-þríhyrningnum skammt frá Svarta hafinu sem reyndust vera sýktar af banvæna stofninum. Yfirvöld í Rúmeníu sem og sérfræðingar Evrópusambandsins segjast hafa gert ráð fyrir því versta þegar í upphafi og því hafi verið gripið til hörðustu ráðstafana þó að þá hafi ekki verið ljóst hvort að um mannskæða stofninn væri að ræða. Í Dónár-þríhyrningnum á fjöldi fugla sér viðkomu á leið til og frá sumarstöðvum í Evrópu. Næsta vor fara þessir fuglar meðal annars til Rússlands, Pólands, Þýskalands og Norðurlanda. Sérfræðingar Evrópusambandsins, sem funduðu vegna málsins í gær, vilja grípa til harðra aðgerða til að koma í veg fyrir útbreiðslu veikinnar um alla álfuna. Þeir vilja meðal annars takmarka aðgang almennings að vatnssvæðum þar sem villtir farfuglar eru í miklu magni og alifuglar verða að vera innan dyra. Alífuglabændur verða einnig bólusettir og fá leiðbeiningar um hvernig þeir geti áttað sig á smituðum fuglum hratt. Í grein í vísindatímaritinu Nature, sem birt var í gær, var því haldið fram að flensulyfið Tamiflu dugi alls ekki alltaf í baráttunni við fuglaflensuna. Bent er á að ónæmi hafi fundist í sjúklingum með fuglaflensuna í Víetnam og því sé líklegt að finna verði fleiri ráð og beyta í baráttunni gegn flensunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira