Erlent

Sprengjutilræði í Suðvestur-Íran

Tveir létust og 50 særðust þegar tvær sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í borginni Ahvaz í suðvesturhluta Írans fyrir stundu. Sprengjurnar sprungu við verslunarmiðstöð í miðborg Ahvaz. Enginn hefur lýst ábyrgð á árásunum en róstursamt hefur verið á svæðinu í Khuzestan-héraði, meginolíuhéraði Írans. Stjórnvöld hafa kennt aðskilnaðarsinnum um árásirnar og gefið í skyn að einhverjir þeirrar hafi hlotið þjálfun hjá Bretum, sem neita því með öllu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×