Erlent

Dóu þegar hús hrundi í Barcelona

Fimm fórust þegar þriggja hæða fjölbýlishús í Barcelona á Spáni hrundi til grunna í nótt. Það voru einkum innflytjendur frá Norður-Afríku sem bjuggu í húsinu sem var byggt á átjándu öld. Ekki er vitað um ástæður þess að byggingin hrundi en björgunarsveitir eru enn á vettvangi. Íbúar sem komust af segja að hópur fólks hafi safnast saman í húsinu undanfarin kvöld til að borða einu máltið dagsins, en fólkið er íslamskt og fastar á meðan ramadan stendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×