Erlent

Nýr erfðaprins í Danmörku

Danir eignuðust nýjan erfðaprins í nótt þegar María Elísabet krónprinsessa ól dreng laust fyrir klukkan tvö að dönskum tíma á Háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Faðirinn, Friðrik krónprins, var viðstaddur fæðinguna og þegar hann ávarpaði blaðamenn í morgun fór hann ekki leynt með þá gleði sem hann fann fyrir þegar erfinginn kom í heiminn. Að sögn Friðriks heilsast móður og barni vel, en drengurinn var 14 merkur og 51 sentímetri þegar hann kom í heiminn. Fánar hafa verið dregnir að húni víða í Danmörku og búast má við að fagnað verði víða um landið í dag vegna fæðingar prinsins. Prinsinn ungi er annar í erfðaröðinni á eftir föður sínum Friðriki og sérfræðingar sem Politken ræðir við segja nánast öruggt að hann muni heita Kristján.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×