Fimmtán milljónir á kjörskrá 15. október 2005 00:01
Fimmtán milljónir Íraka hafa í dag tækifæri til að kjósa um stjórnarskrá landsins. Kosningaþátttaka er sögð góð, þrátt fyrir árásir og hótanir uppreisnar- og hryðjuverkamanna. Það sem af er degi hefur kosningin gengið vel og engar fregnir hafa borist af mannfalli meðal óbreyttra borgara. Uppreisnar- og hryðjuverkamenn hafa þó gert nokkrar árásir en öryggisgæsla er gríðarmikil til að gera þeim erfitt fyrir. Til að mynda hefur öll umferð verið bönnuð og alls eru um hundrað þúsund lögreglumenn og öryggisverðir á götum úti. Í Ramadi var samt ráðist á hersveitir og fáir voru á kjörstöðum. Í nágrannabæjum höfðu kjörstaðir ekki einu sinni verið opnaðir. Svipaða sögu var að segja í Mósúl, þriðju stærstu borg Íraks, þar sem flugmiðum var dreift þar sem fólk var hvatt til að sniðganga kosningarnar. Á þessum stöðum eru staða uppreisnarmanna sterk. Það þykir tíðindum sæta að súnnítar virðast hafa ákveðið að sniðganga ekki kosningarnar eins og þeir gerðu í stórum stíl í við þingkosningarnar í janúar. Þó að talið sé víst að mikill meirihluti þeirra sé mótfallinn stjórnarskránni þykir yfirvöldum það engu að síður skref í rétta átt að þeir skuli taka þátt í kosningunni. Einn af stærstu stjórnmálaflokkum súnníta lýsti einnig stuðningi við stjórnarskránna í vikunni. Búist er við því að stjórnarskráin verði samþykkt en fari svo að hún verði felld verður nýtt þing, sem kosið verður í desember, einungis bráðabirgðaþing eins og það þing sem nú situr, og eina verkefni þess verður þá að byrja frá grunni við samningu nýrrar stjórnarskrár.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira