Al-Qaida liðar vilja breiða út óöldina 10. nóvember 2005 19:26
Al-Qaida í Írak vill breiða óöldina þar út til nágrannaríkjanna, samkvæmt leyniskjölum sem fundust á föllnum aðstoðarmanni Zarqawis, leiðtoga samtakanna. Al-Qaida ber ábyrgð á þremur árásum í Amman í Jórdaníu í gær, þar sem nærri sextíu manns af fjölmörgum þjóðernum féllu. Jórdanía hefur verið ótrúlega friðsælt land sé horft á kortið og spáð í nágrannaríkin. En það breyttist í gærkvöld þegar sjálfsmorðsárásir al-Qaida liða kostuðu fimmtíu og sex lífið. Um 100 manns særðust. Árásirnar voru gerðar á þrjú alþjóðleg hótel í höfuðborginni Amman, Grand Hyatt, Radisson SAS og Days Inn hótelin. Ekki leið á löngu uns yfirlýsing frá al-Qaida í Írak var birt á Netinu. Þar sagði að ljón samtakanna hefður gert árás á valin skotmörk, sem jórdanski einræðisherrann hefði breytt í skjólshús fyrir óvini trúarinnar, gyðinga og krossfara; skotmörk sem væru miðstöðvar svika og hórdóms. Hótelin voru ekki síst vinsæl meðal ferðamanna frá Ísrael en þeir sem féllu og særðust komu alls staðar að. Í sjálfu sér koma hryðjuverkin ekki á óvart. Jórdanar eru nánir bandamenn Bandaríkjamanna sem veita landinu gríðarlega aðstoð. Jórdanía er í fjórða sæti yfir þau ríki sem fá mesta aðstoð frá Bandaríkjunum. Amman er miðstöð erlendra kaupsýslumanna og diplómata og miðstöð umferðar til og frá Írak. Nærri hálf milljón Íraka býr í landinu, gamlir stuðningsmenn stjórnvalda og stuðningsmenn uppreisnaraflanna í Írak. Og leiðtogi al-Qaida í Írak er Jórdani, Abu Musab al-Zarqawi. Hann var dæmdur í fimmtán ára fangelsi þar árið 1996 en sleppt eftir að Abdullah konungur veitti honum sakaruppgjöf. Hans er nú leitað og hafa Bandaríkjamenn lagt tuttugu og fimm milljónir dollara honum til höfuðs.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fleiri fréttir Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Sjá meira