Vill slíta samstarfi við Sharon 10. nóvember 2005 12:02
Amir Peretz, nýkjörinn formaður Verkamannaflokksins í Ísrael, vill slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Likud-flokk Ariels Sharons, forsætisráðherra landins. Hann mun hitta Sharon á sunnudag þar sem þeir ræða hvort kosningum í landinu verði flýtt vegna þessa. Amir Peretz bar í gær nokkuð óvæntan sigur á Shimoni Peres í leiðtogakjöri ísraelska Verkamannaflokksins. Munurinn var aðeins tvö prósent en Amir Peretz mun engu að síður leiða flokkinn í næstu þingkosningum í Ísrael. Hann hefur nú í hyggju að slíta samstarfinu við Likud-bandalag Sharons og vill að þingkosningum verði flýtt, en þær eru fyrirhugaðar eftir ár. Hinn nýi formaður er tiltölulega óþekktur á alþjóðavettvangi en sigur hans á Nóbelsverðlaunahafanum Peres þykir endurspegla óánægju flokksmanna með gengi flokksins eftir stórtap í síðustu kosningum árið 2003, en Verkamannaflokkurinn hafði lengi töglin og hagldirnar í stjórnmálum landsins. Þá er talið að margir flokksmenn séu andvígir stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sem Amir Peretz segir að hafi leitt til þess að líf fátækrar Ísraelsmanna hafi versnað til muna. Þessi tíðindi þykja veikja stöðu Ariels Sharons forsætisráðherra enn frekar en hann hefur sætt harðri gagnrýni í eigin flokki fyrir að fallast á að flytja landnema á brott úr byggðum á Gasaströndinni fyrr á árinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira