Engin miskunn hjá Pútín 14. október 2005 00:01
Engin miskunn var fyrirskipunin sem Pútín Rússlandsforseti gaf sveitum sínum og þær hlýddu. Tugir hryðjuverkamanna sem gerðu árásir í bæ í Suður-Rússlandi voru þurrkaðir út í dag. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. Að þurrka út þýðir í raun að mennirnir voru drepnir. Atburðarásin hófst í gær, þegar yfir hundrað byssumenn réðust á lögreglustöðvar, stöðvar öryggissveita og aðrar mikilvægar byggingar í bænum Nalchik í Suður-Rússlandi, skammt frá landamærunum að TT9. Miklir bardagar brutust út með byssugelti og ringulreið frá á morgun. Fljótlega varð ljóst að um sveitir hliðhollar aðskilnaðarsinnum í TT9 var að ræða og í yfirlýsingu frá þeim sagði að andstæðingar stjórnvalda í Kreml hefðu aðstoðað. Þetta er áfall fyrir Pútín forseta, sem hét því árið 2000 að klekkja á aðskilnaðarsinnunum og tryggja öryggi rússneskra borgara. Honum hefur ekki tekist það nema síður sé og þykja atburðirnir í gær og dag undirstrika það. Það kemur því ekki á óvart að hann hafi gefið út skipun um hörð viðbrögð. "Héðan í frá munum við svara í sömu mynt, öllum þeim sem með vopnavaldi ógna rússnesku samfélagi. Við munum bregðast við á sama hátt og núna," sagði Vladimir Pútín, forseti Rússlands. Talsmenn öryggissveita sögðu í dag að þeir árásarmannanna sem streyttust á móti hefðu nú allir verið drepnir, sjötíu og tveir talsins. Þrjátíu og einn er í haldi yfirvalda og sérsveitir eru nú á hælum þeirra sem reyna að flýja. Tuttugu og fjórir lögreglumenn féllu í átökunum og tólf óbreyttir borgarar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira