Erlent

Selveiðar aftur hagkvæmar?

Selveiðar gætu aftur orðið vænleg atvinnugrein hér á landi, ef þær fréttir frá Noregi reynast réttar að lýsi, unnið úr sel, sé tíu til tuttugu sinnum áhrifaríkara en venjuelgt þorska- og ufsalýsi. Norskt fyrirtæki, sem er farið að framleiða selalýsi segir að margfalt meira sé af Omega þrjú fitusýrunni í því en hefðbundnu lýsi, en nútíma lifnaðarhættir Vesturlandabúa valdi því að að fólk skorti þær sýrur í vaxandi mæli. Talsmenn norska fyrirtækisins Pro Vena Norway segja að rannsóknir bendi til meðal annars til þess að selalýsið hafi góð áhrif á liðabólgureftir aðeins tíu daga neyslu samanborið við það að neyta þurfi venjulegs lýsis í tvo til fjóra mánuði til að ná sama árangri. Auk þess hafi sellýsið mjög góð áhrif á æðakerfið og að badnarísk rannsókn bendi til þess að ástand kransæða í sjötugum ínúítum sé ámóta gott og í tvítugum vesturlandabúum. Grundvellinum var kippt undan undan selveiðum hér við land þegar umhverfisverndarsinnar lögðust gegn sölu á selskinnum til klæðagerðar og markaðurinn hrundi. Meðal leilðtoga þeirrar baráttu var fraska þokkagyðjan Birgitte Bardot, sem fyrr á árum sveipaði sig pelsum úr skinnum ýmissa loðdýra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×