Erlent

Fuglaflensan komin til Grikklands

Grísk yfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensu hefði orðið vart í landinu í fyrsta sinn. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO búast við að pestin haldi áfram að breiðast út. Fyrstu fuglaflensutilfellin hafa greinst í grískum fiðurfénaði en stjórnvöld í Grikklandi skýrðu frá því í gær að kalkúnar á búgarði á Víney í Eyjahafi, skammt frá Tyrklandi, hefðu drepist úr pestinni. Ekki liggur fyrir hvort flensan sé af H5N1-stofninum illvíga en niðurstöður rannsókna munu liggja fyrir á næstu dögum. Á síðustu vikum hefur veikin fundist í tyrkneskum og rúmenskum fuglum. Þá sögðu sérfræðingar WHO í samtali við blaðamenn í gær að engin spurning væri um að fuglaflensan héldi áfram að breiðast út. Þeirra helsta áhyggjuefni er hins vegar hvort H5N1-veiran stökkbreytist þannig að hún geti smitast manna á milli. Vandamálið er alvarlegast í Asíu þar sem nánast má tala um fuglaflensufaraldur. Við slíkar aðstæður er hættan mest á stökkbreytingu. Í gær hrósuðu embættismenn á vegum Evrópusambandsins tyrkneskum stjórnvöldum fyrir árangursríkar aðgerðir þegar flensan greindist þar og sögðu engar vísbendingar um að íbúum svæðisins þar sem veikin kom upp stafaði hætta af henni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×