Erlent

Forsetaljóðabók skyldulesning

Forseti Túrkmenistans fyrir lífstíð, Saparmurat Niyazov, hefur gefið út nýja ljóðabók sem verður skyldulesning fyrir alla þegna landsins, að því er fram kom í ríkisfjölmiðlum landsins í gær. Nýja ljóðabókin ber titilinn "Mín kæra", en hún var kynnt á túrkmenska þinginu í síðustu viku að viðstöddum þingheimi, ráðherrum ríkisstjórnarinnar, blaðamönnum og háskólamönnum. Ríkisdagblaðið Hlutlaust Túrkmenistan greindi frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×