Úkraína fái að semja um NATO-aðild 17. október 2005 00:01
Viktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagðist í gær vonast til að viðræður um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu gætu hafist á vori komanda. Ennfremur sagði hann að fríverslunarsamningur við Evrópusambandið gæti orðið að veruleika innan 12-15 mánaða. "Hjarta Evrópu er í Úkraínu og Evrópa getur ekki lifað án hjarta síns," sagði Jústsjenko í ræðu hjá hinni virtu alþjóðlegu ráðgjafarstofnun Chatham House í Lundúnum. Þangað var Jústsjenko boðið til að taka við viðurkenningu stofnunarinnar fyrir þátt sinn í að koma á þeim tímamótabreytingum í úkraínskum stjórnmálum sem kölluð hefur verið "appelsínugula byltingin" og að sjá til þess að það umrót ylli ekki átökum í Evrópu. Elísabet Englandsdrottning afhenti Jústsjenko viðurkenninguna. Jústsjenko átti síðan fund með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sem þetta misserið gegnir formennskunni í ESB, til að ræða möguleika Úkraínu á ESB-aðild. NATO hefur eflt samstarf sitt við Úkraínu eftir "appelsínugulu byltinguna" í fyrra, en hefur þó ekki gefið neitt út um það hvort eða hvenær landið gæti fengið aðild.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira