Merkel kynnir ráðherralið sitt 17. október 2005 00:01
Forystumenn stóru flokkanna tveggja í Þýskalandi, Kristilegra demókrata (CDU/CSU) og Jafnaðarmanna (SPD) hittust í gær til að hefja formlegar viðræður um gerð málefnasamnings samsteypustjórnar flokkanna. Og Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, kynnti hverjir úr röðum hennar flokksmanna setjast með henni í þessa væntanlegu ríkisstjórn. Ráðherraval Merkel er blanda af nýjum andlitum og reynsluboltum sem sátu með Helmut Kohl í ríkisstjórn á sínum tíma. Merkel tilnefnir sex fagráðherra auk yfirmanns kanslaraskrifstofunnar, en sú staða þykir ígildi ráðherrastóls. Að honum og Merkel sjálfri meðtöldum er þannig fullt jafnræði milli flokkanna í stjórninni. Jafnaðarmenn kynntu sinn ráðherralista fyrir helgi, en gegn því að fallast á að Merkel yrði kanslari fá þeir nokkur lykilráðuneyti, svo sem bæði fjár- og utanríkismála. Í ráðherraliði Merkel verða tvö þekkt andlit frá Kohl-tímanum. Wolfgang Schäuble verður innanríkisráðherra á ný og Horst Seehofer, sem fór með heilbrigðismál í stjórn Kohls, verður landbúnaðarráðherra. Edmund Stoiber, formaður CSU, verður efnahags- og tæknimálaráðherra. Varnarmálaráðherra verður Franz Josef Jung, náinn samherji eins kappsamasta innanflokkskeppinautar Merkel, Rolands Koch sem er forsætisráðherra Hessen. Tvær konur fær Merkel til liðs við sig. Þær eru Annette Schavan, fyrrverandi menntamálaráðherra Baden-Württemberg, og Ursula von der Leyen verður fjölskyldumálaráðherra. Í stól kanslaraembættisstjóra fær Merkel Thomas de Maiziere, innanríkisráðherra Saxlands og bróðurson Lothars de Maiziere, fyrsta lýðræðislega kjörna ríkisstjórnarleiðtoga Austur-Þýskalands sem Merkel þjónaði sem talsmaður sameiningarárið 1990.
Erlent Fréttir Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira