Berjast fyrir togveiðibanni 17. október 2005 00:01
Umhverfisverndarsinnum, sem berjast gegn því að togarar fái að veiða fisk, bættist liðsauki fimmtíu breskra vísindamanna í morgun, sem skora á bresk stjórnvöld að beita sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir alheimstogveiðibanni. Sagt er frá þessu í The Indipendent í morgun og sagt að allir helstu sjávarlíffræðingar og vistfræðingar Breta séu í hópi áskorenda. Þeir telja meðal annars upp tegundir sem séu í útrýmingarhættu vegna eyðileggingar, sem þeir segja að togveiðar valdi. Til vara skora þeir a´bresk stjórnvöld að þau beiti sér fyrir allsherjar togveiðibanni í Evrópusambandinu. Nýverið greindu fjölþjóðleg umhverfissamtök, sem berjast gegn togveiðum, frá því, að þau séu aðeins einu atkvæði frá því að fá teknar upp viðræður um bann við botnvörpuveiðum á úthöfunum, á vettvangi Sameinuþuþjóðanna. Markmið þeirra er að fá samþykkt hnattrænt bann við togveiðum, en Íslendingar hafa til þessa, ásamt naumum meirihluta, hafnað öllum slíkum tillögum. Þeir sem þekkja til áhrifamáttar umhverfisverndarsinna telja að það styttist óhjákvæmilega í einhverskonar bann við togveiðum. Hér á landi eru gerðir út hátt í hundrað togarar og fjöldi smærri togbáta og dragnótabáta. Umþaðbil helmingur alls þorskafla okkar fæst með togveiðum, 90 prósent ufsaaaflans, 70 prósent ýsuaflans, rúmur helmingur steinbítsaflans og hátt í 90 prósent grálúðuaflans. Hér eru því slíkir hagsmunir í húfi fyrir íslenska þjóðarbúið að viðmælendur Fréttastofu treystu sér ekki til að spá neitt um framtíðina ef togveiðibann yrði að veruleika. -----
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira