IRA segist hættur vopnaðri baráttu 28. júlí 2005 00:01
Írski lýðveldisherinn, IRA, sem drap og limlesti þúsundir manna í 35 ára vopnaðri baráttu gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, lýsti því yfir í gær að hann væri hættur að beita ofbeldi sem pólitísku baráttutæki. Bæði írska og breska stjórnin, sem og ráðamenn víðar um heim, fögnuðu þessu sem mikilvægum áfanga í átt að varanlegum friði á Norður-Írlandi. Breski forsætisráðherrann Tony Blair sagði yfirlýsinguna "áfanga af fordæmislausri þýðingu" og írski forsætisráðherrann Bertie Ahern sagði að hún boðaði "endalok IRA sem skæruliðasamtaka". En stjórnmálamenn í héraði og sumir fréttaskýrendur vöruðu við því að lesa of mikið út úr þessari yfirlýsingu; IRA hefði áður reynst standa illa við gefin loforð, mörgum spurningum væri ósvarað og IRA-menn hygðust ekki leysa samtökin upp. En þrátt fyrir þessa fyrirvara þykir yfirlýsingin mikill áfangi frá því samtökin lýstu yfir vopnahléi árið 1997. Í yfirlýsingu IRA, sem var dreift á DVD-formi á netinu, segir að öllum leynilegum hópum samtakanna hefði verið fyrirskipað að losa sig við vopn sín og hætta öllum aðgerðum, frá kl. 16 að staðartíma í gær að telja. "Forysta (samtakanna) hefur formlega fyrirskipað að hinni vopnuðu baráttu skuli hætt," segir þar, en yfirlýsinguna les Seanna Walsh, sá IRA-maður sem lengst hefur setið í fangelsi eða í 21 ár. "Öllum sjálfboðaliðum hefur verið sagt að leggja aðeins pólitískum og lýðræðislegum verkefnum lið og eingöngu með friðsamlegum aðferðum. Sjálfboðaliðar eiga ekki að taka þátt í neinum öðrum aðgerðum," segir í yfirlýsingunni, sem beint er til hinna á að giska 500 til 1000 meðlima samtakanna. IRA-forustan skorar í yfirlýsingunni á Breta og hinn bretlandsholla meirihluta mótmælenda á Norður-Írlandi að viðurkenna þetta útspil hennar sem fullnægjandi til að viðræður um að koma á samstjórn beggja fylkinga Norður-Íra verði teknar upp að nýju. Slíkar viðræður voru meginmarkmið friðarsamninganna frá 1998, sem kenndir eru við föstudaginn langa.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira