Tími ríkisstjórnar Merkel strax á enda? 3. nóvember 2005 20:30
Ríkisstjórn Angelu Merkel í Þýskalandi var spáð tveggja ára líftíma eftir kosningarnar fyrir mánuði. Stjórnin hefur reyndar ekki ennþá verið mynduð en tími hennar virðist engu að síður liðinn. Eftir kosningarnar í september tók við valdabarátta, sem endaði með því að Angela Merkel stóð uppi sem einskonar sigurvegari í slagsmálum jafnvígra. Gerhard Schröder tapaði og hverfur von bráðar af þingi. Franz Müntefering, formaður Jafnaðarmannaflokksins, leiddi viðræður við Merkel,og Edmund Stoiber, forsætisráðherra Bæjaralands, stefndi að því að verða valdamesti ráðherrann. En á mánudag sagði Müntefering af sér formannsembættinu vegna deilna um hver ætti að verða ritari flokksins og framkvæmdastjóri, og í fyrradag dró Stoiber sig úr stjórnmálum á landsvísu. Hann ætlar að halda sig í Bæjaralandi sem forsætisráðherra, bæði af ótta við tóm vandræði vegna innanhúsmála j afnaðarmanna og vegna deilna innan CSU um hver ætti að taka við af honum sjálfum á heimavelli. Merkel stendur því ein eftir af fjórmenningaklíkunni sem hóf valdabaráttuna eftir kosningar, þó að Müntefering segist reyndar samt vilja verða ráðherra og varakanslari. Hann slær jafnframt á raddir sem efast um að grundvöllur sé fyrir samsteypustjórn í ljósi atburða vikunnar. Münteferingsegir að flokkarnir vilji tryggja að fyrir lok næstu vikugeti samsteypustjórnin tekið ákvörðun sína. Þrátt fyrir úrtöluraddir telji hann flokkana á réttri leið og að samsteypustjórnin geti orðið að veruleika. Það kosti átak að koma henni á fót en hann viti að Þýskaland muni njóta góðs af henni. Stjórnmálaskýrendur ber ekki saman um þýðingu alls þessa . Þ eir telja ýmist að Merkel sé nú einráð, eða afskaplega einmanna í Berlín. Í það minnsta er ljóst að þeir sem hafa verið valdamenn innan stóru flokkanna í Þýskalandi eru það ekki lengur. Þjóðverjar vildu breytingar fyrir kosningar en kusu í raun stjórn sem líklegast þótti að stæði fyrir stöðnun. Nú virðist hins vegar að þeir hafi fengið breytingarnar sem þeir vildu: gömlu draugarnir eru að hverfa og nýtt fólk er að taka við, miklu fyrr og hraðar en nokkurn grunaði. Á næstunni skýrist hvað það hefur í för með sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Sjá meira