Ekki miklar breytingar á hryðjuverkafrumvarpi 8. nóvember 2005 13:45 MYND/AP
Breska ríkisstjórnin mun ekki gera veigamiklar breytingar á umdeildum hryðjuverkalögum sem leggja á fram á breska þinginu á morgun. Þetta segir Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands. Búist hafði verið við að ríkisstjórnin myndi leggja fram málamiðlun um frumvarp vegna harðrar andstöðu við það í öllum þingflokkum en af því verður ekki. Ríkisstjórnin leggur fram frumvarpið til þess að geta betur tekist á við hryðjuverkaógnina, en þau mál hafa verið í gagngerri endurskoðun í Bretlandi eftir hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum í sumar. Innanríkisráðherrann Clarke lagði fram frumvarpið í síðustu viku en dró það til baka þegar í ljós kom að stór hluti þingmanna Verkamannaflokksins myndi greiða atkvæði gegn því og þar með yrði það fellt. Bæði Clarke og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hafa síðan fundað með samherjum sínum í Verkamannaflokknum og telja sig nú hafa fengið nægan stuðning til að koma frumvarpinu í gegnum þingið. Meðal þess sem þingmenn voru andsnúnir var ákvæði sem gerir lögreglu kleift að halda grunuðum hryðjuverkamönnum í þrjá mánuði án þess að ákæra þá. Mannréttindasamtök hafa einnig gagnrýnt ákvæðið en það verður ekki tekið út, segir Clarke. Í staðinn verður klausu skotið inn í frumvarpið þar sem kveðið er á um að lögin verði endurskoðuð eftir ár. Meðal annarra ákvæða sem finna má í frumvarpinu eru bann við því að hvetja til eða dásama hryðjuverk, undirbúa hryðjuverk og að sækja hryðjuverkaþjálfunarbúðir auk þess sem hægt verður að sækja menn til saka í landinu fyrir árásir annars staðar í heiminum.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira