Óeirðir færast í vöxt utan Frakklands 9. nóvember 2005 12:03 Slökkviliðsmenn við störf í Arras í Norður-Frakkalandi í morgun, en þar var m.a. kveikt í tveimur verslunum. MYND/AP
Útgöngubann og hert löggæsla skilaði tilætluðum árangri í París í nótt. Í öðrum borgum landsins og nokkrum borgum í Þýskalandi og Belgíu hafa óeirðir hins vegar færst í vöxt. Mikið dró úr óeirðunum í París í nótt, eftir að ákveðið var að heimila útgöngubann og auka við mannafla lögreglunnar. Þó var kveikt í 190 bílum í borginni og sjötíu manns handteknir. Miðað við undanfarnar nætur telst nóttin í nótt friðsæl enda hefur verið kveikt í meira en þúsund bílum nokkrar nætur í röð. En í öðrum borgum Frakklands jukust óeirðirnar í nótt. Í Lyon, Toulouse, Bordeux og Amiens héldu óróaseggir uppteknum hætti og þar logaði allt í óeirðum. Í Lyon þurfti að loka öllu lestarkerfi borgarinnar, eftir að Mólotov-kokteil var hent inni á lestarstöð. Í Toulouse var kveikt í fjölmörgum bílum og unglingar hentu heimatilbúnum sprengjum að fjölmennri sveit lögreglumanna, sem réð ekki neitt við neitt. Tvær borgir hafa notfært sér heimild til að setja á útgöngubann, sem ríkisstjórn Frakklands samþykkti í gær. Borgin Amiens varð fyrst til að nýta sér þessa heimild og þar er öllum undir sextán ára aldri skylt að vera með fullorðnum utandyra. Þá hefur einnig verið sett bann við sölu bensíns og olíu til ungmenna í borginni. Í París gildir útgöngubann enn sem komið er bara í tveim úthverfum í suðurhluta borgarinnar. Óeirðirnar í Frakklandi hafa færst til annarra landa og í Þýskalandi héldu ungmenni áfram að ganga berseksgang í nótt. Bæði í Berlín og Köln var kveikt í fjölmörgum bílum og lögregla þurfti ítrekað að hafa afskipti af hópum ungmenna sem létu öllum illum látum. Í Belgíu var það sama uppi á teningnum í nótt. Í Brussel, Lokeren, Ghent og Antwerpen var kveikt í bílum og strætisvögnum og aðferðirnar allar þær sömu og í París.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Sjá meira