Hjálparstarf gengur enn erfiðlega 18. október 2005 00:01
Fimmtíu og fjögur þúsund manns eru nú talin hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmírhérað fyrir tíu dögum. Neyðaraðstoð hefur enn ekki borist til hálfrar milljónar manna. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir hjálparstarf í Kasmír erfiðara en eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi í fyrra, og telur ekki nógu mörg vetrartjöld til í heiminum til að veita öllum þeim sem eru heimilislausir eftir skjálftann, tímabundið húsaskjól í vetur. Meginástæða þess hversu hægt gengur að ná til nauðstaddra er ekki endilega viljaleysi eða seinagangur, heldur er einfaldlega afar erfitt að komast til hundruða fjallaþorpa þar sem tugþúsundir slasaðra hafa enn ekki fengið læknisaðstoð. Slæmt veður hamlaði því að þyrlur gætu flogið í nokkra daga og voru múlasnar jafnvel notaðir til þess að ferja hjálpargögn til afskekktra staða. Nú eru þyrlurnar farnar að fljúga á ný, en þótt matur og læknisaðstoð berist loksins, þá sefur fólk enn hundruða þúsunda tali undir berum himni í næturfrostinu. Þrjár milljónir manna eru taldar heimilislausar eftir skjálftann, en um fimmtán þúsund þorp eru á svæðinu, ofaní djúpum dölum og hátt uppi í fjöllum, mörg án nokkurs vegasambands vegna skriðufalla eftir skjálftann. Vetur er að ganga í garð og yfirvöld hafa varað við því að ef ekki takist að koma fólki í skjól í allra nánustu framtíð, þá eigi óbeinum fórnarlömbum skjálftans eftir að fjölga mjög.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira