Erlent

Biðraðir til trafala

Eigandi veitingastaðar í Whitby á Norður Englandi á yfir höfði sér kæru vegna gríðarlegra biðraða við veitingastaðar hans. Ekki er óalgengt að sjá yfir eitt hundrað manns í biðröð eftir að komast inn en kokkurinn, sem er verðlaunakokkur, hefur auglýst að þar sé að fá besta fisk og bestu franskar í heimi. Aðrir veitingastaðaeigendur í grennd við staðinn, segja aðra staði verða af viðskiptum vegna biðraðanna og reyna nú bæjaryfirvöld að leysa úr flækjunni en án lítils árangurs. Staðurinn, sem ber nafnið Magpie Cafe, hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í yfir 50 ár og hefur borið fram sömu réttina allan tímann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×