Franskir fjölmiðlar gagnrýna stjórnvöld 7. nóvember 2005 19:32
Franskir fjölmiðlar eru sammála um að engar töfralausnir séu í boði vegna óeirðanna sem hafa geisað í Frakklandi síðustu 11 kvöld. Franskir fjölmiðlar segja stjórnmálamenn hafa brugðist fólki í úthverfunum síðastliðna fjóra áratugi. "Frakkland greiðir nú gjaldið fyrir hroka fortíðar" segir í Le Figaro. "Í úthverfunum má sjá hvernig stjórnmálamenn hafa brugðist í fjóra áratugi" Leiðarahöfundur Liberation skrifar: "Óeirðirnar eru afleiðing ótrúlegrar umræðu um réttarríkis og innra öryggi, sem hefur undanfarna áratugi einkennst af lýðskrumi fyrir kosningar og svo áhugamálum hvers ráðherra fyrir sig." Og í Les Echos er stjórnmálamönnum líka kennt um. Í stað þess að ráðast að rót vandans hafi þeir ávallt verið fljótir til að slökkva elda og svo sópað öskunni undir teppi, en í raun aldrei tekið til. Fyrsta fórnarlamb mótmælanna í Frakklandi lést í dag: Sextugur karlmaður sem barinn var til óbóta á föstudaginn var dó á sjúkrahúsi síðdegis. Elleftu nóttina í röð létu þúsundir ungmenna ófriðlega í úthverfum Parísar. Kveikt var í fjórtán hundruð bifreiðum, nærri fjögur hundruð manns handtekin og í fyrsta sinn var skotið á lögreglumenn. Í hverfinu Grigny særðust tveir lögreglumenn þegar gengi ungmenna gerði þeim fyrirsát, eftir því sem talsmaður lögreglunnar sagði. Annars staðar var kastað steinum og bensínsprengjum. Strætisvagnar ganga ekki eftir áætlunum og lestarkerfið er að hluta í lamasessi. Á tímabili lágu niður ferðir á Charles-de-Gaulle flugvöllinn sem er í miðju óeirðasvæðisins. Talsmenn lögreglu krefjast útgöngubanns. Átökin voru víðar, í Marseille, Saint-Etienne, Toulouse, Metz og Lille var ástandið slæmt. Alls staðar voru það ungir afkomendur innflytjenda sem voru mest áberandi, atvinnulaus og vonlaus ungmenni af norður-afrískum uppruna sem búa í úthverfum sem einkennast af fjörutíu ára gömlum háhýsum sem reist voru til að hýsa farandverkamenn sem komu flestir frá fyrrverandi nýlenduríkjum Frakka í Afríku. Áratugum síðar finnst íbúum hverfanna lítið hafa breyst, þeir eru ekki enn þá orðnir hlutar fransks samfélags þó að meirihlutinn sé borinn og barnfæddur í Frakklandi. Atvinnuleysi er mikið og ljóst er að reiðin hefur verið orðin mikil þegar loksins sauð yfir fyrir tæpum hálfum mánuði. Og þegar eldarnir loga virðist sem enginn geri sér almennilega grein fyrir því hvernig hægt er að slökkva þá, eða hvar á að hefjast handa við að leysa vandann. Nikolas Sarkozy, innanríkisráðherrann sem kallað hefur mótmælendur og óeirðaseggir pakk og uppskorið skammir fyrir, segir að koma verði á lögum og reglu í úthverfunum. Hann sagði það skyldu allra sjá til þess að óeirðunum muni linna, bæði lögreglunnar og þeirra sem taka þátt í óeirðunum. Þær yrðu að stoppa og sem fyrst.
Erlent Fréttir Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent