Segir að pyntingar viðgangist ekki 7. nóvember 2005 19:23
Bandaríkjaforseti neitar því að pyntingar séu meðal úrræða sem gripið sé til í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Hann segir hins vegar að Bandaríkin geri allt sem hægt sé til að klekkja á þeim sem vilji þeim illt. Bush er ekki á því að óeðlilegum aðferðum sé beitt til að fá upplýsingar frá meintum hryðjuverkamönnum, heldur sé beitt þeim aðferðum sem til þarf og það með réttu. Bush: „Við finnum hryðjuverkamenn og látum þá svara til saka. Við söfnum upplýsingum um hvar hryðjuverkamenn kunna að leynast. Við erum að reyna að trufla áæltanir þeirra. Hvað sem við gerum til að ná því markmiði er innan ramma laganna. Við beitum ekki pyndingum." „Það er óvinur sem lúrir, leggur á ráðin og bruggar launráð um að skaða Bandaríkin á nýjan leik. Þú getur verið fullviss um að við munum elta þá uppi af fullri hörku, en við munum fara að lögum. Ég er sannfærður um að þegar fólk horfir á staðreyndirnar mun það sjá að við eigum enn mikið verk óunnið og eins að við verðum að verjast sem mest við meigum innan ramma laganna." Bush svaraði engu um leynileg fangelsi þar sem meintir hryðjuverkamenn eru pyntaðir, leyniflugvélar CIA sem flytja meinta hryðjuverkamenn nauðuga á milli landa eða tilraunir Hvíta hússins til að fá undanþágu fyrir leyniþjónustuna frá nýjum lögum sem banna pyntingar meintra hryðjuverkamanna. Þögnin um þessi mál er slík að stjórnvöld víða um heim, meðal annars hér á landi, sem óskað hafa eftir skýringum á fangelsum og flugferðum, fá engin svör.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira