Fujimori handtekinn í Chile 7. nóvember 2005 12:45 Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, um borð í flugvél á leið til Chile þar sem hann var handtekinn.
Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, var handtekinn í morgun skömmu eftir að hann kom í óvænta heimsókn til Chile. Fujimori er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna meintrar spillingar og mannréttindabrota í valdatíð sinni á árunum 1990 til 2000 en hann hefur undanfarin fimm ár verið í útlegð í Japan. Forsetinn fyrrverandi ku hafa heimsótt Chile í tengslum við áform hans um að bjóða sig aftur fram til forseta í Perú en lögrega handtók hann á hóteli í Santiago að beiðni dómara í Chile. Ekki er ljóst hvað gert verður við Fujimori og hvort hann verður framseldur til Perús, en breska ríkisútvarpið hefur eftir yfirmanni Interpol í Chile að alþjóðlegar handtökuskipanir á hendur honum sem gefnar hafi verið út séu ekki gildar í Chile og því eigi Fujimori að vera frjáls ferða sinna. Fujimori hefur meðal annars verið sakaður um aðild að drápi á 25 meintum félögum í skæruliðahreyfingu í Perú. Þá á hann einnig yfir höfði sér ákærur um spillingu í embættistíð sinni. Forsetinn fyrrverandi hefur alla tíð neitað öllum slíkum ásökunum og boðar þátttöku í forsetakosningum sem fram fara í Perú í apríl á næsta ári. Þrátt fyrir að hann hafi nýlega fengið aftur perúskt vegabréf er ólíklegt að honum verði að ósk sinni þar sem honum hefur verið bannað að bjóða sig fram í landinu til ársins 2010.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira