Beittu táragasi þegar landamæri voru opnuð 7. nóvember 2005 10:30 MYND/AP
Pakistanskir lögreglumenn þurftu að beita táragasi til að dreifa hundruðum íbúa í Kasmír sem reyndu að komast yfir landamæri Indlands og Pakistans þegar þau voru opnuð í morgun vegna jarðskjálftans sem skók svæðið fyrir tæpum mánuði. Fólkið krafðist þess að fá að fara yfir landamærin til að vitja ættingja sinna í indverska hluta Kasmír en lögregla hleypti af skotum og beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum. Indverjar og Pakistanar sömdu um það í síðustu viku að opna landamærin í Kasmír til þess að liðka um fyrir hjálparstarfi í Pakistan, en landið varð mjög illa úti í skjálftanum 8. október. Til stóð að opna landamærin á fimm stöðum en þau voru aðeins opnuð á einum stað í morgun og þeir einu sem fengu að fara yfir þau voru bílar frá Indlandi með hjálpargöng handa hinum þurfandi. Ástæðan fyrir þessari varfærni er sú að Indverjar óttast að herskáir aðskilnaðarsinnar í pakistanska hluta Kasmír nýti sér ástandið og geri árásir í Indlandi, en aðeins er rúm vika síðan mannskæðar árásir voru gerðar í Nýju-Delí í Indlandi. Yfirvöld í Indlandi segja þó að landamærin verði opnuð á tveimur öðrum stöðum í vikunni en útlit er fyrir að íbúar í Kasmír beggja vegna landamæranna þurfi að bíða í tíu daga þar til þeir geta vitjað ættingja sinna hinum megin mæranna. Hermenn vinna að því að laga vegi sem skemmdust í hamförunum og fjarlægja jarðsprengjur á svæðinu. Indverjar og Pakistanar hafa lengi deilt um yfirráð í Kasmír en opnun landamæranna þykir merki um batnandi sambúð þjóðanna. Hafa háttsettir menn beggja vegna landamæranna lýst yfir ánægju með viðburðinn og segja daginn sögulegan. Það skyggir hins vegar á gleðina hversu margir þjást eftir jarðskjálftann í Pakistan, en talið er að þrjár milljónir manna í landinu séu heimilislausar. Hjálparstofnanir hafa varað við því að ef þjóðir heims herði sig ekki í hjálparstarfinu kunni þúsundir að deyja úr kulda og vosbúð þegar vetur skellur á, en Veðurstofa Pakistans spáir hörðum vetri á hamfarasvæðunum og að hitastig verði töluvert lægra og úrkoma meiri en í meðalári.
Erlent Fréttir Mest lesið Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Sjá meira