Laug til um árásina 20. október 2005 00:01
Anne-Lise Jønch Pedersen, frambjóðandi danska Framfaraflokksins í héraðskosningum á Sjálandi, er í vondum málum eftir að upp komst að hún laug því að hópur innflytjenda hefði ráðist á sig. Á mánudaginn kom Pedersen fram í sjónvarpi, bólgin og blá og með brotin gleraugu á nefinu, og sagði að hópur unglinga af erlendum uppruna hefði hrint sér í götuna þar sem hún dreifði bækl-ingum á torgi í bænum Nakskov á Lálandi. Hún sagði árásina augljóslega vera af pólitískum rótum, en Framfaraflokkurinn hefur gagnrýnt mjög fjölgun innflytjenda í Danmörku. Dagblaðið Jyllands-Posten greinir hins vegar frá því að lögregla telji að Pedersen hafi logið til um árásina. „Öll sagan er uppspuni. Við höfum ekki fundið neinar vísbendingar sem renna stoðum undir hana," sagði Søren Ravn-Nielsen, lögregluforingi í samtali við blaðið. Hið sama er að segja um skrautlegar frásagnir af áverkum Pedersen. „Enginn hefur skoðað þessi meiðsli, hún hefur ekki leitað meðferðar neins staðar. Því hefur rannsókninni verið hætt." Hann bætti reiður við að skammarlegt væri að eyða skattfé í rannsókn máls sem byggt væri á lygum.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira