Erlent

Norðmenn sækja ekki um ESB-aðild

Nýja vinstristjórnin í Noregi mun ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu á þessu nýhafna kjörtímabili. Þetta sagði nýi utanríkisráðherrann, Jonas Gahr Støre úr Verkamannaflokknum, í viðtali við fréttastofuna AFP í gær. „Aðild að Evrópusambandinu er ekki á dagskrá næstu fjögur árin," sagði Störe, sem tók við embætti á mánudaginn. „Það er ljóst að ríkisstjórnin mun ekki sækja um aðild." Rétt eins og síðasta stjórn, sem var samsteypustjórn hægri- og miðjuflokka, eru flokkarnir sem standa að nýju stjórninni mjög klofnir í afstöðu sinni til ESB-aðildar. Í Verkamannaflokknum er skýr meirihluti fyrir aðildarumsókn, en andstaða við hana er rótgróin í samstarfsflokkunum, Sósíalíska vinstriflokknum og Miðflokknum. Støre hefur hingað til verið talinn til Evrópusinna í norskum stjórnmálum. Vegna þess hve afgerandi yfirlýsingar hans voru í viðtalinu við AFP virtist hann vera að skrúfa fyrir þá möguleika sem forystumenn Verkamannaflokksins, fyrst og fremst formaðurinn og nýi forsætisráðherrann Jens Stoltenberg sjálfur, höfðu opnað fyrir. Í kosningabaráttunni, þar sem Evrópumálin lágu annars almennt í þagnargildi, sagði -Stolt-enberg- að ríkisstjórn undir sinni forystu myndi sækja um aðild ef stöðugur meirihluti mældist fyrir því meðal kjósenda í landinu. En svo virðist sem það hafi verið hluti af málefnasamningi stjórnarflokkanna að slá líka þennan möguleika af. Nýlegar skoðanakannanir benda til að meirihluti Norðmanna hafi snúist gegn ESB-inngöngu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslanna um stjórnarskrársáttmála ESB í Frakklandi og Hollandi og deilna vegna aðildarviðræðna við Tyrki. Síðustu misserin þar á undan hafði fylgið við ESB sveiflast upp á við í kjölfar endurkjörs George W. Bush Bandaríkjaforseta og Íraksstríðsins. Støre segir stjórnina ætla að byggja Evróputengsl Noregs áfram á EES-samningnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×