Erlent

Vindurinn úr Wilmu

Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku. Loftþrýstingurinn í Wilmu mældist svo lágur í fyrradag, 882 millibör, að veðurfræðingar útnefndu storminn þann öflugasta sem myndast hefði á Atlantshafi. Í gær var hann hins vegar færður niður um eina gráðu og er nú 4. stigs fellibylur með 62 metra meðalhraða á sekúndu. Íbúar Mexíkó fengu þrátt fyrir það að kenna á hvassviðri og úrkomu þegar jaðrar Wilmu teygðu sig inn á meginland Mið-Ameríku í gær. Fregnir bárust af tjóni í Hondúras og þar er fjögurra fiskimanna saknað. Í mexíkóska bænum Cancun flykktust þúsundir ferðamanna af hótelum sínum til flugvallarins og reyndu að komast burt áður en óveðrið hæfist fyrir alvöru. Búist var við að miðja stormsins gengi yfir Yucatan-skaga í nótt. Á Kúbu hafa 96.000 manns verið fluttir af heimilum sínum og á Haítí hafa híbýli yfir tvö þúsund fjölskyldna farið undir vatn. Enda þótt vind hafi lægt lítillega bjuggu íbúar Flórídaskagans sig undir það versta en reiknað er með að þangað komi Wilma á sunnudaginn. Ferðamenn hafa að mestu haft sig á brott og í dag eiga íbúar á hættusvæðunum að vera búnir að koma sér í öruggt skjól.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×