20 þúsund enn í neyðarskýlum 20. október 2005 00:01
Enn er ekki ljóst hvernig koma á upp heimilum fyrir þá einu milljón manna, kvenna og barna sem misstu heimili sín þegar fellibylurinn Katrína reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. Bandaríska alríkisstjórnin, þingmenn og yfirvöld í ríkjunum þar sem fellibylurinn olli mestum skemmdum hafa ekki enn komið sér saman um hvað skuli gera til að leysa vanda heimilislausra. Óvíst er hversu stór hluti New Orleans verður endurreistur, hvort byggja eigi upp framtíðarhúsnæði fyrir heimilislausa annars staðar en á hamfarasvæðunum og hvort leggja eigi áherslu á að byggja leiguhúsnæði eða eignarhúsnæði. Í það minnsta tuttugu þúsund manns hafast enn við í neyðarskýlum sem voru sett upp í kjölfar hamfaranna. Um eitthundrað tuttugu og fimm þúsund manns gista á hótelum og rúmlega eitthundrað og fimmtíu þúsund manns dvelja hjá ættingjum og vinum. Á ferð sinni um New Orleans í síðasta mánuði lofaði George W. Bush Bandaríkjaforseti einhverju mesta uppbyggingarstarfi sem heimurinn hefði séð. Það tefur þó fyrir aðgerðum að deilt er um hvort nota eigi þorra þess fjár sem fer í uppbygginguna á hamfarasvæðunum sjálfum eða gefa fólki færi á að byggja sér upp framtíð þar sem það vill, hvort sem er þar sem það bjó áður eða annars staðar. Einnig er deilt um hvernig eigi að fjármagna uppbygginguna og hvaða ríkisútgjöld skuli skera niður á móti svo álagið á ríkissjóð verði ekki of mikið, hann er nú þegar rekinn með methalla.
Erlent Fréttir Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Innlent Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Erlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Innlent Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Sjá meira