Erlent

Býður almenningi á ball

Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn. Dansleikurinn er þó formlega til að minnast þess að öld er liðin frá því Noregur öðlaðist sjálfstæði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×