Erlent

David keppir við David

Tveir menn með sama fornafn berjast um leiðtogaembættið hjá breska Íhaldsflokknum. David Cameron og David Davis fengu flest atkvæði í kjöri þingmanna flokksins um hverjir skyldu fá að vera í framboði þegar 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum velja sér leiðtoga. Þriðji frambjóðandinn, Liam Fox, fékk fæst atkvæði og er því úr leik. Áður hafði Kenneth Clarke, fyrrum fjármálaráðherra, fallið í kosningu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×