Erlent

Vilja draga úr tryggingum

Stærstu tryggingafélög heims á sviði flugmála íhuga að hætta að tryggja flugfélög fyrir árásum á farþegaflugvélar þar sem notuð eru efnavopn og geislavirk efni. Láti þau verða af þessu þurfa Evrópuríki væntanlega að gangast í ábyrgðir fyrir flugfélögin líkt og þau gerðu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Bandarísk stjórnvöld eru þegar í ábyrgðum fyrir þarlend flugfélög vegna þessa og því hefur þetta ekki áhrif þar. Stjórnendur SAS og British Airways segja að tryggingafélög þeirra hafi þegar sagst vilja fella þessar tryggingar niður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×