Erlent

Wilma veikist nokkuð

Fellibylurinn Wilma er hefur veikst nokkuð og er nú orðinn fjórða stigs fellibylur. Sérfræðingar vara þó við að Wilma gæti átt eftir að styrkjast á nýjan leik. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami staðfesti í gær að Wilma hefði náð meiri styrk en nokkur annar fellibylur á Atlantshafi þegar kraftur hennar var sem mestur. Wilma stefnir nú hraðbyri að Júkatan skaganum við Mexíkóflóa. Nokkuð dró úr krafti hennar í morgun, en sérfræðingar telja allt eins líklegt að hún byrji aftur að styrkjast þegar kvölda tekur. Ekki er búist við að Wilma nái ströndum Bandaríkjanna fyrr en um helgina. Þar hafa yfirvöld þó þegar gripið til ráðstafana, enda fellibylirnir Katrín og Ríta enn í fersku minni. Yfirvöld á Flórída Keys eyjaklasanum skipuðu öllum ferðamönnum að fara burt í gær. Öllum áttatíu þúsund íbúum eyjanna hefur svo verið gert að yfirgefa heimili sín eigi síðar en á föstudaginn. Og það er ekki bara í Bandaríkjunum sem yfirvöld eru í viðbragðsstöðu, því í Hondúras, Níkaragva, á Jamaíka og á nokkrum eyjum í Karabíska hafinu hefur verið gripið til ráðstafana. Þá spá veðurfræðingar að úrkoman í fjalllendinu á Kúbu verði 63 sentimetrar í dag og 38 á morgun á Cayman eyjum og Jamaíka í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×