Erlent

Ostborgarafrumvarpið samþykkt

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt lagafrumvarp sem kemur í veg fyrir að fólk geti höfðað mál á hendur skyndibitakeðjum og krafið þær um skaðabætur vegna offituvandamála sem fólkið glími við. Flutningsmenn frumvarpsins segja tíma til kominn að binda endi á málsóknir fólks sem verði að axla ábyrgð á eigin gjörðum frekar en að kenna skyndibitakeðjum um vandamál sín. Þeir lögðu frumvarpið fram eftir að nokkrir táningar höfðuðu mál gegn McDonald's skyndibitakeðjunni. Þrátt fyrir að fulltrúadeildin hafi samþykkt frumvarpið er óvíst að það verði að lögum, til þess þarf öldungadeild Bandaríkjaþings einnig að samþykkja það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×