Dánartalan gæti tvöfaldast 20. október 2005 00:01
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir dánartölu vegna jarðskjálftanna í Pakistan og Indlandi tvöfaldast á næstunni, verði hjálp til fórnarlamba hamfaranna ekki aukin. Nú þegar hafa 80 þúsund látist. Annan segir nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið bregðist við hörmungum hraðar en gert hefur verið og leggi enn frekar af mörkum til hjálpar fórnarlömbum hamfaranna, áður en það verður of seint. Annan sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í gær að enn vantaði yfir 400 þúsund tjöld sem þola vetrarhörkuna sem framundan er í Kasmír, matar- og drykkjarbirgðir sem og lyf og öryggisbúnað af ýmsu tagi. Þá sagði hann mun fleiri þyrlur vanta, vörubíla og peninga til að byggja skýli fyrir allt að þrjár milljónir manna sem misst hafa heimili sín. Auk látinna er talið að yfir 70 þúsund manns hafi slasast í jarðskjálftunum og hefur enn ekki náðst til hluta þeirra vegna lélegrar færðar, veðurs og skorts á hjálpargögnum. Annan mun halda fund í Genf í næstu viku til að biðja ríkisstjórnir heimsins að gera allt sem í þeirra valdi stendur svo viðeigandi hjálp berist til fórnarlambanna. Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin greindi frá því í dag að 17 stífkrampatilfelli hafi komið upp á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan, þar af þrjú banvæn. Reynt er nú að bólusetja eins marga og hægt er en stífkrampi er bakteríusýking sem veldur alvarlegum vöðvakrampa og getur valdið því að sjúklingurinn kafnar. NATO hefur svarað kalli Annans og ákveðið að senda fjölda flugvéla til bjargar að minnsta kosti tíu þúsund manns frá stöðum sem erfiðast hefur verið að komast á. Þá munu verða sendir fleiri matarbakkar, drykkir og lyf til að sporna við enn frekara mannfalli en orðið hefur.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira