Sprengjubúnaður virkaði ekki 14. nóvember 2005 02:00 Á götum Amman. Jórdanir með mynd af Abdullah II. framan á bílnum sínum í skrúðgöngu gegn hryðjuverkum sem fram fór í gær
Konan, sem var handtekin heitir Sajida Mubarak Atrous al-Rishawi. Hún tók þátt í sjálfsmorðssprengjutilræðunum sem skóku höfuðborg Jóraníu, Amman, á miðvikudag. Þá voru samtímis sprengdar sprengjur á þremur hótelum og urðu þær 57 manns að bana auk tilræðismannanna. Í viðtalinu lýsir al-Rishawi aðdraganda tilræðanna og hvernig eiginmaður hennar hafi kennt sér hvernig hún ætti að sprengja sig og aðra í loft upp. Hún fór ásamt manni sínum inn á hótelið þar sem meðal annars stóð yfir brúðkaupsveisla en þegar á hólminn var komið virkaði sprengjubúnaður hennar ekki. Sprengjuefnið sem þau notuðu var gríðarlega kraftmikið og er því haldið fram að tilræðið hafi verið framið til þess að drepa eins marga og mögulegt væri. Í viðtalinu er al-Rishawi mjög stressuð en þar sýndi hún meðal annars sprengjubúnaðinn sem notast var við. Hún var handtekin í gær en að sögn yfirvalda í Jórdaníu kom ábending úr röðum al-Kaída sem leiddi til handtöku hennar. Al-Rishawi þessi er systir Mubarak Atrous al-Rishawi, sem er talinn hafa verið hægri hönd al-Zarqawi, hæstráðanda al-Kaída í Írak. Handtaka konunnar er talin geta leitt til þess að hægt verði að afla mikilvægum upplýsingum um hryðjuverkastarfsemi al-Zarqawi. Mubarak al-Rishawi var hins vegar skotinn af Bandaríkjaher í Írak fyrir nokkru síðan. Al-Kaída í Írak hefur nú þegar lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræðunum og segja að þau hafi verið gerð til þess að mótmæla stuðningi Jórdaníumanna við Bandaríkjamenn og önnur vestræn ríki. Konungur Jórdaníu, Abdullah II, segir að árásirnar hafi ekkert með Vesturveldin að gera, þær hafi beinst að saklausum, jórdönskum ríkisborgurum. Hann bætir því hins vegar við að Jórdanía sé að taka afleiðingum stríðsrekstrar Bandaríkjamanna í Írak. Hann telur mikilvægt að Írak verði hluti af alþjóðlegu samfélagi. Abdullah segir að allt verði gert til þess að hafa uppi á þeim sem eiga sök á þessum glæpum, þó að leita þurfi út fyrir landsteina Jórdaníu og að handtaka al-Rishawi eigi eftir að hjálpa til í þeirri baráttu.
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Sjá meira